Leiðbeiningar fyrir turn

Notendaleiðbeiningar fyrir Kosmos-turn

Huawei H168-383 5G CPE Ultra 6 WiFi 7

1. Byrjaðu hér: svona kemstu í kosmósið

Turninn er tilbúinn til notkunar þegar þú færð hann.

Þú þarft yfirleitt bara að:

  • Taka turninn úr kassanum.
  • Tengja straumbreytinn við turninn.
  • Stinga straumbreytinum í samband við rafmagn.
  • Bíða í nokkrar mínútur á meðan turninn ræsir sig.
  • Taka mynd eða skrifa niður nafnið á turninum og lykilorðinu á botni turnsins
  • Finna nafn turnsins í listanum í símanum, tölvunni eða sjónvarpinu.
  • Slá inn lykilorðið sem er á botni turnsins.

Nafn turnsins byrjar yfirleitt á:

H168-383

Lykilorðið finnur þú líka á botni turnsins.

2. Nafn og lykilorð turnsins

Á botni turnsins eru upplýsingarnar sem þú þarft.

Þar finnur þú:

  • nafn þráðlausrar nettengingar turnsins
  • lykilorð fyrir þráðlaust net
  • notendanafn og lykilorð til að auðkenna þig inn á stjórnborð turnsins, ef þess þarf

Þú þarft aðeins að nota nafn þráðlausrar nettengingar og lykilorðið.

Þú þarft ekki að skrá þig inn á stjórnborð turnsins til að komast á netið.

3. Staðsetning á turni

Staðsetning skiptir máli. Turninn tengist farsímaneti og dreifir þráðlausu neti um heimilið.

Best er að hafa turninn:

  • nálægt glugga
  • í opnu rými
  • ekki á gólfi
  • ekki inni í skáp
  • ekki á bak við sjónvarp
  • ekki við hliðina á stórum málmhlutum
  • ekki þar sem margir þykkir veggir eru á milli turns og tækjanna sem nota netið

Góð regla:

Ef netið er hægt eða óstöðugt skaltu prófa að færa turninn nær glugga og hærra upp.

4. Ljósin á turninum

Ljósin á turninum hjálpa þér að sjá hvort hann nær sambandi.

Almennt má lesa ljósin svona:

Ljós eða merkiHvað þýðir það?Hvað á ég að gera?
Turninn er með ljós og virðist ræsa sigTurninn er að fara í gangBíddu í nokkrar mínútur
4G eða 5G ljós sýnir gott sambandTurninn nær sambandiPrófaðu að tengjast þráðlausu neti
Ljós sýnir veikt sambandSambandið gæti verið lélegtFærðu turninn nær glugga
Engin 4G/5G tengingTurninn nær ekki sambandiEndurræstu turninn og prófaðu annan stað
Nafn á neti birtist ekkiTækið nær ekki þráðlausu netiBíddu og prófaðu aftur

Ekki þarf að lesa of mikið í hvert ljós. Mikilvægasta spurningin er einföld:

Er turninn kominn í gang, nær hann sambandi og ná tækin mín þráðlausu merki frá honum?

5. Ekkert net?

Bilanagreindu í þessari röð:

Skref 1: Athugaðu rafmagnið

Gakktu úr skugga um að:

  • straumbreytirinn sé tengdur við turninn
  • straumbreytirinn sé í sambandi við rafmagn
  • ljós sé á turninum

Ef engin ljós kvikna skaltu prófa aðra innstungu.

Skref 2: Endurræstu turninn

  • Taktu straumbreytinn úr sambandi.
  • Bíddu í 30 sekúndur.
  • Stingdu straumbreytinum aftur í samband.
  • Bíddu í 3–5 mínútur.

Prófaðu síðan að tengjast þráðlausu neti aftur.

Skref 3: Athugaðu hvort þú sért að velja rétt þráðlaust net

Opnaðu listann yfir þráðlaus net í símanum, tölvunni eða sjónvarpinu.

Leitaðu að nafni turnsins sem er að finna á botni hans. Það byrjar yfirleitt á:

H168-383

Veldu nafnið og sláðu inn lykilorðið sem er líka á botni turnsins.

Skref 4: Betri staðsetning á turni

Ef turninn virðist ræsa sig en netið virkar ekki, eða sambandið er mjög veikt, skaltu prófa að færa turninn:

  • nær glugga
  • á opnari stað
  • ofar í rýminu
  • frá sjónvarpi, hátölurum, málmhlutum og þykkum veggjum

Hinkraðu í nokkrar mínútur og prófaðu aftur.

Ef þetta virkar enn ekki

Ef þú hefur prófað skrefin hér að ofan og turninn virkar enn ekki eðlilega láttu okkur vita með því að senda tölvupóst á kosmos@kosmos.is með stuttri lýsingu á vandamálinu. Við sendum þér upplýsingar um framhaldið.

6. Ef netið er hægt

Hraði getur breyst eftir staðsetningu, álagi á farsímaneti, veggjum, fjölda tækja og því hvar turninn er staðsettur.

Prófaðu þetta:

  • Færðu turninn nær glugga.
  • Settu turninn á opinn stað.
  • Endurræstu turninn.
  • Endurræstu tækið sem þú ert að nota.
  • Prófaðu netið aftur nálægt turninum.
  • Prófaðu að aftengja tæki sem eru ekki í notkun.

Ekki hafa turninn inni í skáp, á gólfi eða bak við sjónvarp.

Kosmos lofar ekki ákveðnum hraða á tengingunni, en í örfáum undantekningatilfellum geta aðstæður á einhverjum stöðum haft neikvæð áhrif á samband turns við farsímanetið, á þráðlaust net innanhúss og netumferð.

7. Ef þú nærð ekki þráðlausu neti frá turni

Ef þú sérð ekki nafn turnsins í listanum yfir þráðlaus net sem eru í boði, skaltu prófa þetta:

  • Athugaðu hvort turninn sé tengdur við rafmagn.
  • Bíddu í 3–5 mínútur.
  • Athugaðu hvort nafnið byrji á H168-383.
  • Endurræstu turninn.
  • Prófaðu aftur í síma, tölvu eða öðru tæki.

Ef ekkert tæki finnur þráðlaus net frá turni eftir þessi skref getur verið að turninn sé ekki að virka eðlilega. Sendu okkur þá tölvupóst á kosmos@kosmos.is með stuttri lýsingu á vandamálinu og við leiðbeinum með framhaldið.

8. Ef lykilorðið virkar ekki

Byrjaðu á þessu:

  • Athugaðu hvort þú sért að velja rétt þráðlaust net.
  • Sláðu lykilorðið inn nákvæmlega eins og það stendur á botni turnsins.
  • Passaðu sérstaklega upp á stóra og litla stafi.
  • Athugaðu hvort þú sért nokkuð að rugla saman bókstöfum og tölustöfum, til dæmis O og 0.
  • Prófaðu aftur.

Ef lykilorðinu hefur verið breytt er ekki lengur hægt að nota lykilorðið á botni turnsins.

Þá eru tveir kostir:

  • Reyna að muna nýja lykilorðið
  • endurstilla turninn í upphafsstillingar

9. Má ég breyta nafni og lykilorði turnsins?

Já, þú mátt breyta nafni og lykilorði turnsins.

Kosmos mælir þó almennt ekki með því ef stillingum hefur verið breytt getur verið erfiðara fyrir okkur að aðstoða þig.

Við mælum með að þú notir nafnið og lykilorðið sem eru á botni turnsins, nema þú hafir sérstaka ástæðu til að breyta þeim.

10. Má ég endurstilla turninn?

Já, þú mátt endurstilla turninn í upphafsstillingar.

Kosmos mælir þó ekki með því nema að þú hafir góða og gilda ástæðu til.

Endurstilling getur verið gagnleg ef:

  • búið er að breyta stillingum turnsins
  • lykilorðið að þráðlausu neti er gleymt
  • turninn hagar sér undarlega eftir miklar breytingar á stillingum
  • turninn virðist ekki komast í eðlilegt horf

Eftir endurstillingu eru upplýsingarnar á botni turnsins gildar aftur.

Það þýðir að þú tengist aftur með nafninu og lykilorðinu sem eru á botni turnsins.

11. Ekki opna turninn

Ekki opna turninn, taka hann í sundur eða eiga við búnaðinn inni í honum.

Þú mátt:

  • tengja turninn við rafmagn
  • endurræsa turninn
  • færa turninn til
  • tengjast þráðlausu neti
  • nota lykilorðið á botni turnsins
  • endurstilla turninn ef þess þarf
  • fylgja leiðbeiningum Kosmos við bilanagreiningu

Þú átt ekki að:

  • opna turninn
  • taka turninn í sundur
  • eiga við innri búnað
  • reyna að laga vélbúnað á eigin spýtur
  • nota leiðbeiningar af netinu sem eru ekki frá Kosmos

Ef turninn virkar ekki eftir einfalda bilanagreiningu skaltu hafa samband við Kosmos.

Afhending, skil og útskipti hjá Dropp

12. Að fá nýjan turn

Þegar viðskiptavinur hefur staðfest að hann vilji leigja turn setur Kosmos pöntun af stað.

Eftir það tekur Dropp við afhendingarferlinu.

Viðskiptavinur fær skilaboð um:

  • stöðu sendingar
  • afhendingarstað
  • afhendingarkóða

Þegar sendingin er tilbúin fer viðskiptavinur á tiltekin afhendingarstað Dropp og sækir turninn.

13. Að skila turni

Ef þú þarft að skila turni sendir Kosmos þér tölvupóst með strikamerki eða kóða.

Þú sýnir kóðann á tilteknum afhendingarstað Dropp. Þar er kóðinn skannaður og tekið við turninum.

Þú þarft ekki að prenta neitt út, nema Kosmos eða Dropp biðji sérstaklega um það.

Þegar turni er skilað þarf líka að skila straumbreytinum.

14. Að skipta út turni

Ef turninn virðist bilaður eða uppfyllir ekki væntingar þarf viðskiptavinur fyrst að prófa einföld bilanagreiningarskref.

Að lágmarki þarf að prófa:

  • athuga rafmagn
  • endurræsa turninn
  • bíða í nokkrar mínútur
  • færa turninn nær glugga eða á betri stað

Ef grunur leikur á að um bilun í turni sé að ræða þarf að skipta honum út. Þú færð þá leiðbeiningar frá Kosmos, Dropp sendir þér tilkynningu þegar nýr turn er tilbúinn til afhendingar á tilteknum afhendingarstað og þá er tilvalið að skila gamla.

15. Skilafrestur

Ef þú hættir áskrift eða vilt skila turni sem grunur er á að hagi sér óeðlilega þarf að skila innan 30 daga frá því að síðasta áskriftartímabili lauk, eða nýi turninn var afhentur.

Viðskiptavinur greiðir aldrei leigu fyrir tvo turna.

Kosmos sendir ítrekanir og hvatningu sem er nauðsynlegt að bregðast við.

Ef gamla turninum er ekki skilað innan 30 daga getur Kosmos fellur á viðskiptavin skilagjald samkvæmt verðskrá Kosmos.

Bilanagreining

Netið virkar ekki

Prófaðu fyrst:

  • Athugaðu rafmagnstengingu.
  • Endurræstu turninn.
  • Bíddu í 3–5 mínútur.
  • Færðu turninn nær glugga.
  • Tengdu þig aftur við þráðlausa netið. Nafnið byrjar á H168-383.

Ef þetta virkar ekki skaltu senda okkur línu á kosmos@kosmos.is.

Netið er hægt

Prófaðu fyrst:

  • Færðu turninn nær glugga.
  • Hafðu turninn á opnum stað.
  • Endurræstu turninn.
  • Prófaðu að tengjast nálægt turninum.
  • Fækkaðu tengdum tækjum tímabundið.

Ég finn ekki þráðlaust net

Prófaðu fyrst:

  • Athugaðu hvort turninn sé tengdur við rafmagn.
  • Leitaðu að nafni í listanum yfir þráðlaus net sem byrjar á H168-383.
  • Endurræstu turninn.
  • Tengdu eitthvað annað tæki.

Lykilorðið virkar ekki

Prófaðu fyrst:

  • Athugaðu hvort þú sért að velja rétt þráðlaust net. Ef þú hefur breytt lykilorðinu og/eða nafni tengingarinnar þarftu að nota það. Annars,
  • Sláðu lykilorðið inn nákvæmlega eins og það stendur á botni turnsins.
  • Passa stóra og litla stafi.
  • Endurstilla turninn aðeins ef lykilorðinu hefur verið breytt og þú manst það ekki.

Turninn hagar sér undarlega

Prófaðu fyrst:

  • Endurræsa turninn.
  • Færa hann á opnari stað.
  • Bíða í nokkrar mínútur.
  • Prófa aftur með einu tæki nálægt turninum.
  • Hafa samband við Kosmos ef vandinn heldur áfram.

Reglur fyrir gervigreindarfulltrúa Kosmos

Grunnregla

Gervigreindarfulltrúi Kosmos á að vera rólegur, skýr og lausnamiðaður.

Hann á ekki að nota tæknimál nema nauðsynlegt sé.

Hann á að leiða viðskiptavin í gegnum einföld skref áður en hann býður skil eða útskipti.

Gervigreindarfulltrúi má leggja til

  • Turninn er tilbúinn til notkunar við afhendingu.
  • Viðskiptavinur þarf yfirleitt bara að stinga turni í samband við rafmagn.
  • Nafn turns og lykilorð eru á botni turnsins.
  • Nafn turns byrjar yfirleitt á H168-383.
  • Viðskiptavinur má færa turninn, endurræsa hann og tengjast aftur.
  • Best er að hafa turninn nálægt glugga og á opnum stað.
  • Viðskiptavinur má breyta nafni og lykilorði, en Kosmos mælir ekki með því.
  • Viðskiptavinur má endurstilla turninn, en Kosmos mælir ekki með því sem fyrsta skrefi.
  • Kosmos styður ekki Huawei-smáforrit fyrir þessa þjónustu.
  • Ef viðskiptavinur hefur farið í gegnum bilanagreiningu eða upp kemur þekkt vandamál, kallar það á útskipti.
  • Dropp sér um afhendingu og skil.
  • Ef skil eru samþykkt fær viðskiptavinur tölvupóst með strikamerki eða kóða.
  • Viðskiptavinur sýnir kóðann hjá Dropp.
  • Skila þarf turni og straumbreyti.
  • Ef skipt er um bilaðan turn þarf að skila gamla turninum innan 30 daga.
  • Ef gamla turninum er ekki skilað rukkar Kosmos skilagjald samkvæmt verðskrá að undangengnum reglulegum ítrekunum.

Gervigreindarfulltrúi má ekki segja

  • Að Kosmos styðji Huawei AI Life eða önnur Huawei-smáforrit.
  • Að viðskiptavinur eigi að opna turninn.
  • Að viðskiptavinur eigi að taka turninn í sundur.
  • Að viðskiptavinur eigi að breyta flóknum stillingum.
  • Að ákveðinn hraði sé tryggður.
  • Að vandinn tengist bilun í turni áður en einföld skref hafa verið prófuð.
  • Að viðskiptavinur verði rukkaður fyrir tvo turna ef bilun hefur verið flögguð og útskipti eru í gangi.
  • Að það skipti engu máli hvenær gamla turninum er skilað.
  • Að viðskiptavinur þurfi ekki að skila straumbreyti.
  • Að Dropp taki við turni án kóða.
  • Að viðskiptavinur geti sótt nýjan turn nema Kosmos hafi samþykkt útskipti og nýi turninn sé tilbúinn.

Svör sem gervigreindarfulltrúi má nota

Þegar viðskiptavinur vill komast á netið

Turninn er tilbúinn til notkunar. Stingdu honum í samband við rafmagn og bíddu í nokkrar mínútur. Finndu síðan nafnið á þráðlausri nettengingu turnsins í símanum eða tölvunni. Nafnið byrjar yfirleitt á H168-383. Lykilorðið er á botni turnsins.

Þegar viðskiptavinur finnur ekki þráðlaust net

Byrjum á einföldu skrefunum. Athugaðu fyrst hvort turninn sé tengdur við rafmagn og bíddu í nokkrar mínútur. Leitaðu síðan að nafni á þráðlausu neti sem byrjar á H168-383. Ef það birtist ekki skaltu taka turninn úr sambandi, bíða í 30 sekúndur og stinga honum aftur í samband. Gefðu turninum nokkrar mínútur til að endurræsa sig og prófaðu aftur.

Þegar netið er hægt

Hraðinn getur ráðist mikið af staðsetningu turnsins. Prófaðu að færa turninn nær glugga og hafa hann á opnum stað, ekki til dæmis inni í skáp, á gólfi eða bak við sjónvarp. Endurræstu hann síðan og prófaðu aftur eftir nokkrar mínútur.

Þegar viðskiptavinur spyr hvort hann megi breyta lykilorðinu

Já, þú mátt breyta nafni og lykilorði turnsins. Við mælum þó ekki sérstaklega með því, því það getur gert okkur erfiðara að aðstoða þig síðar. Einfaldast er að halda sig við nafnið og lykilorðið sem eru á botni turnsins.

Þegar viðskiptavinur hefur gleymt breyttu lykilorði

Ef lykilorðinu hefur verið breytt og þú manst það ekki getur verið lausn að endurstilla turninn í upphafsstillingar. Þá ættu upplýsingarnar á botni turnsins að gilda aftur. Við mælum þó með að gera þetta aðeins ef einföld bilanagreining skilar ekki árangri.

Þegar viðskiptavinur vill skila turni

Kosmos sendir þér tölvupóst með strikamerki eða kóða. Þú ferð með turninn á tiltekinn afhendingarstað Dropp, sýnir kóðann og þar er tekið við turninum. Mundu að skila líka straumbreytinum.

Þegar viðskiptavinur vill skipta út turni

Við skulum fyrst prófa nokkur einföld skref til að útiloka að vandinn tengist rafmagni, staðsetningu eða þráðlausri tengingu. Ef við fáum turninn ekki til að virka eðlilega þarf að skoða útskipti. Ef Kosmos samþykkir útskipti getur þú skilað gamla turninum á einhverjum afhendingarstað Dropp og sótt nýjan turn þegar hann er tilbúinn.

Þegar viðskiptavinur spyr um gjald ef gamla turninum er ekki skilað

Ef bilun hefur verið skráð og þú færð nýjan turn greiðir þú aldrei fyrir tvo turna. Gamla turninum þarf þó að skila innan 30 daga frá því að þú færð nýja turninn. Við minnum þig reglulega á, en ef honum er ekki skilað rukkar Kosmos skilagjald samkvæmt verðskrá.

Innri þjónusturegla fyrir Kosmos

Áður en útskipti eru samþykkt

Gervigreindarfulltrúi skal leiða viðskiptavin í gegnum að minnsta kosti tvö til fjögur einföld skref:

  • Athuga hvort turninn sé tengdur við rafmagn.
  • Endurræsa turninn.
  • Bíða í 3–5 mínútur.
  • Færa turninn nær glugga eða á opnari stað.
  • Athuga hvort viðskiptavinur sé að tengjast réttu þráðlausu neti.
  • Prófa annað tæki, ef við á.

Ef vandinn heldur áfram má vísa í útskiptaferli.

Þegar útskipti eru samþykkt

  • Kosmos skráir að bilun hafi verið flögguð.
  • Kosmos setur nýjan turn í afhendingarferli.
  • Dropp sendir viðskiptavini skilaboð um stöðu sendingar og afhendingarkóða.
  • Kosmos sendir viðskiptavini tölvupóst með strikamerki eða kóða fyrir skil á gamla turninum.
  • Viðskiptavinur skilar gamla turninum og straumbreyti hjá Dropp.
  • Ef nýr turn er tilbúinn getur viðskiptavinur sótt hann í sömu ferð.
  • Gamla turninum þarf að skila innan 30 daga frá afhendingu nýs turns.
  • Ef gamla turninum er ekki skilað sendir Kosmos ítrekanir.
  • Ef skil dragast áfram rukkar Kosmos skilagjald.

Framsetning

  • Komast á netið með Kosmos-turni
  • Netið virkar ekki
  • Netið er hægt
  • Ég finn ekki þráðlaust net
  • Lykilorð og stillingar
  • Skila eða skipta út turni með Dropp