Náðu í appið

Auðveldasta leiðin og jafnframt sú sem við mælum með er að þú sækir og notir Kosmos appið. Það er að finna í App Store hjá Apple og Play Store hjá Google. Ef þú notar appið til að sýsla með þína hluti er mjög auðvelt að virkja kortið.

Hvernig virkjar þú rafrænt símkort?

Þú færð bæði tilkynningu í appinu og tölvupóst um nýtt rafrænt símkort.

  • Í appinu ferð þú á svæðið “Allt mitt” og velur virkja símkort. Með því að smella á þann takka virkjar þú þjónustuna á einfaldan hátt
  • Ef ekki tekst að virkja rafræna símkortið í gegnum Kosmos appið er alltaf hægt að virkja það handvirkt með QR kóða. Þegar þú kaupir áskrift sendir Kosmos þér QR-kóða í tölvupósti sem er tengdur símanúmerinu þínu. Með því að skanna kóðann geturðu virkjað þjónustuna beint í símanum þínum.
    Sjá nánari leiðbeiningar
  • Ef þú þarft nýtt rafrænt símkort eða QR kóðann aftur geturðu haft samband við okkur á kosmos@kosmos.is og óskað eftir að rafræna símkortið verði endurútgefið.

Áður en virkjun hefst skaltu ganga úr skugga um eftirfarandi

eSIM stuðningur

Staðfestu að tækið þitt styðji rafræn símkort (eSIM).

Vertu með Auðkennisappið

eSIM-ið styður eingöngu rafræn skilríki. Rafræn skilríki með SMS-staðfestingu eru ekki studd.

Tengstu við WiFi

Tryggðu stöðuga nettengingu á meðan uppsetningu stendur.

Hafðu QR kóðann tilbúinn

Gott er að hafa hann opinn og aðgengilegan áður en þú byrjar.

Hafðu símann opinn

Síminn má ekki vera læstur hjá öðru fjarskiptafyrirtæki.

Nóg rafhlaða

Passaðu að rafhlaðan sé nægilega hlaðin.

Virkja rafrænt símkort með QR kóða

Þú getur einfaldlega skannað QR kóðann með myndavélinni á símanum þínum og smellt á hlekkinn sem kemur upp. Ef það virkar ekki þá getur þú fylgt leiðbeiningunum hér:
1

Opnaðu stillingar

Byrjaðu á því að opnaSettings iconSettingsí símanum þínum. Farðu íMobile tower iconMobile serviceog veldu þarAdd eSIM

2

Veldu QR kóða

VelduQR kóðiUse QR Codevalmöguleikann. Skannaðu QR kóðann sem þú fékkst sendan í tölvupósti eða á vef Kosmos.

3

Fylgdu leiðbeiningum

Bíddu á meðan eSIM kortið hleðst niður. Þegar kortið hefur verið fundið skaltu ýta áContinuetil að halda áfram ferlinu.

4

Gefðu kortinu nafn

Til að halda skipulagi er best að nefna nýja kortið "Kosmos".

5

Veldu Kosmos fyrir gögn

Veldu Kosmos línuna fyrir símtöl, SMS og mikilvægast:Cellular Data(farsímagögn).

Prufaðu sambandið

1

Slökkva tímabundið á þráðlausu netsambandi (WiFi).

2

Athuga hvort síminn tengist ekki örugglega farsímaneti.

3

Opna vefsíðu eða app til að prófa netsamband.

4

Kveikja aftur á WiFi ef þú vilt.

Virkja rafrænt símkort án QR kóða

Sláðu inn þær virkjunarupplýsingar sem Kosmos birtir í appinu, vefnum eða sendir þér í email. Alltaf er hægt að slá inn upplýsingar um rafrænt SIM kort handvirkt í stað þess að skanna QR kóða.

1

Veldu Enter Details manually

Neðst á skjánum þar sem þú skannar QR kóða skaltu velja að slá inn upplýsingar handvirkt (Enter Details Manually).

2

Virkjunarupplýsingar

Sláðu inn: SM-DP+ AddressogActivation Code Veldu Áfram (Next) og fylgdu leiðbeiningum á skjánum til að ljúka uppsetningu.